Velkomin á heimasíðuna okkar
Við heitum Bergur, Trausti og Logi Baldur


Um mig:
Bergur er fæddur 14.08.2002 kl: 15.57 kg. 3650 og 52 cm
Trausti er fæddur 26.02.2007 kl: 11.19 kg. 4015 og 52 cm
Logi Baldur er fæddur 20.10.08 kl: 10.39 kg. 3570 og 51 cm
Mamma er fædd 17.12.1976 kl: 10.18 kg. 2750 og 48 cm
Pabbi er fæddur 17.05.1969 kl: 14.30 kg. 3850 og 54 cm

Það er skylda að kvitta í gestabókina

Mamma okkar heitir Agnes Ósk og pabbi heitir Bjartmar Örn og við búum á Grafarholtinu. Bergur er sex ára skólastrákur í Sæmundarskóla. Trausti er tveggja ára leikskólastrákur á Geislabaugi, þar sem öllu þægustu börnin eru ;o) Bergur er kraftmikill, kátur og hjartahlýr strákur. Bergi þykir ofsalega skemmtilegt að leika sér með Playmobil dótið sitt þar sem fjörugt ímyndunaraflið fær notið sín. Auk þess finnst honum gaman að leika sér í sundi og að fara í hjólatúra, hann er duglegur að aðstoða foreldra sína, hvort sem það er við matargerðina, bílaviðgerðir eða að sækja snuddu handa litla bróður sínum. Trausti er algjör orkubolti og finnst voða gaman að leika úti með gröfur og að fara í hjólatúra með foreldrum sínum. Nýlega hefur hann sýnt matargerð áhuga og þá sérstaklega kökubakstri. Nýlega bættist við enn einn gullmolinn í fjölskylduna sem heitir Logi Baldur. Okkur hlakkar mikið til að fá að kynnast þessum glænýja einstaklingi.




Annað:
Barn í ljónsmerki (Bergur)

Barn í ljónsmerkinu elskar að vera á sviði meira en nokkuð annað. Ef þú ert að leita að barni til að leika aðalhlutverkið í skólaleikriti þá skaltu ekki leita frekar því að ljónið er til! Barn í ljónsmerkinu er mjög skapandi og það er líklegt til að setja sjálft upp leikrit og þá sér það um allar hliðar sjálft, þ.e. leikmyndina, leikinn, tónlistina o.s.frv. Þar sem ljónið er ávallt í forystu, þá á barn í ljónsmerkinu marga vini, eða eru þetta fylgjendur? Allavega, þá fer það ekki fram hjá neinum hver ræður hér! Ljónið er gjafmilt og líkar vel að deila frægð sinni með félögum sínum. Þú getur bókað að þetta barn slær í gegn, hvernig á það annars að verða Lion King? Helstu kostir ljónsins eru bjartsýni og gott lundarfar. Þetta barn trúir því almennt að lífið sé yndislegt og að hlutirnir gangi upp fyrir það. Barn í ljónsmerkinu hefur andstyggð á gagnrýni og vill helst ekkert af henni vita. Ljónið er einnig mjög stolt og vill standa sig vel, svo að þegar það kemur fram fyrir áhorfendahóp þá leggur það sig 100% fram. Einnig þegar barn í ljónsmerkinu fer í skóla þá stendur það sig vel, því það vill alltaf vera best. Ljónið er vinsælt og sjarmerandi og þú getur treyst lífi og fjöri í kringum þessi börn.

Barn í fiskamerkinu (Trausti)

Barn í fiskamerkinu er oft í eigin heimi, draumaheimi þar sem ævintýri og ímyndaðir vinir búa. Vildum við ekki öll vilja búa í slíkum heimi? Þetta er barn sem oft er misskilið og því finnst það útundan og skilur ekki af hverju öllum líður ekki eins og því sjálfu. Af þessari ástæða krefst barnið meiri athygli en börn fædd í öðrum merkjum. Barn í fiskamerkinu er listrænt og tónelskt að eðlisfari og elskar að búa til hluti sem gleðja aðra. Tvöföld ánægja ef það hefur foreldri með sér að búa til og skapa. Barn í fiskamerkinu er samúðarfullt og það er gott að gráta á öxlina á því. Þetta er tilfinningaríkt barn og það grætur einnig við öxl þína þegar það þarf að fá útrás. Þetta er barn sem lendir oft í því að vera strítt af bekkjarfélögum, því það er inn í sig og frekar feimið. Þú skalt því fylgjast vel með hvernig það fellur í hópinn og hvernig því gengur að eignast vini. Vegna þess að fiskurinn er í draumaheimi á hann til að slóra, svo ekki senda hann út í búð að kaupa mjólk ef þig vantar mjólkina á næstunni. Betra verkefni fyrir barn í fiskamerki er að leyfa honum að fegra heiminn.

Barn í vogarmerkinu (Logi Baldur)

Börn í vogarmerkinu eru oft glaðleg og broshýr og eru oftar en ekki börnin sem fá bros frá hinum sem bíða á biðstofu læknisins. Þau eru sjarmerandi og heilla aðra upp úr skónum. Félagslyndi einkennir vogina frá fyrstu tíð og litla vogin elskar að hafa margt fólk í kringum sig. Vogarbarn sem þarf að búa við einangrun getur orðið geðstirt, innhverft og óöruggt en þegar allt leikur í lyndi er það opið og hresst. Vogin á mjög erfitt með að gera upp hug sinn og virðist oft hafa lítinn viljastyrk. Þess vegna er mikilvægt að foreldrar hjálpi voginni að rækta með sér sjálfstæði og ákveðni meðal annars með því að fela henni ákveðin verkefni sem reyna á ákvarðanatöku. Líklegt er að Vogin spyrji álits og því er hægt að svara með því að spyrja: “Hvað finnst þér?” Síðan þarf að gefa henni næði til að vega og meta hlutina áður en hún tekur ákvörðun. Vogin er listræn í eðli sínu og mikilvægt að hlúa að þeim eiginleikum og skapa henni aðstöðu til að þroska listræna hæfileika sína.
Þú ert gestur nr. 76302